
Algengar spurningar
Bjóðið þið upp á vegan/glútenlausan valkost í morgunmat?
Við bjóðum bæði vegan og glútenlausan valkost. Vinsamlegast látið starfsfólk okkar vita við komu eða á morgunverðartíma um sérþarfi og þau munu þjónusta ykkur.
Get ég tékkað mig inn seint á kvöldin?
Ef þú þarft að tékka þig inn mjög seint þá er það alls ekki vandamál. Allir fá kóða sendan fyrir komu og þú getur tékkað þig inn á hvaða tíma sem er.
Þurfum við fjórhjóladrifinn bíl á veturna?
Blue Hotel Fagrilundur er hins vegar staðsett við þjóðveginn og er almennt aðgengilegt fyrir allar gerðir bifreiða, þó það fari ávallt eftir veðri og vegaaðstæðum hverju sinni. Við mælum alltaf með því að gestir fylgist með veður- og færðarspám áður en lagt er af stað yfir vetrartímann til að tryggja örugga og ánægjulega ferð.
Hversu margir geta dvalið í minni bústöðunum?
Minni bústaðirnir geta rúmað að hámarki 2 gesti.
Er veitingastaður á hótelinu?
Blue Hotel Fagrilundur er ekki með eigin veitingastað, en í göngufæri eru nokkrir frábærir kostir. Við hlið hótelsins er Friðheimar með sinn vinsæla veitingastað Vínstofuna sem er opin í hádeginu. Friðheimar Vín stofan er opin frá kl. 13:00 til 22:00 (eldhúsið til kl. 20:00) og hinum megin við götuna er Mika Restaurant sem býður upp á góða rétti bæði í hádeginu og á kvöldin. Einnig er í nágrenninu veitingastaður sem býður upp á take-away en einnig er hægt að borða á staðnum. Þar eru meðal annars í boði ljúffengur fish and chips og hamborgarar. Gestir geta einnig tekið matinn með sér og notið hans í matsal hótelsins. Allir þessir veitingastaðir eru í stuttri göngufjarlægð frá hótelinu, og auk þess er fjöldi annarra veitingastaða í aðeins 10–20 km akstursfjarlægð.
Er morgunverður í boði í bústöðunum?
Við erum ekki með morgunverð innifalinn í bústöðunum okkar, í öllum bústöðum er eldhús þar sem gestir geta framreitt morgunverð. Hægt er að kaupa morgunverð á hótelinu.
Er móttakan á hótelinu opin allan sólarhringinn?
Móttakan er opin frá 09:00-22:00. Eftir 22:00 er alltaf hægt að ná í starfsmann í síma sem veitir aðstoð.
Eru herbergin með ísskáp?
Öll herbergi eru með ísskáp með litlum frysti.
Er einhver aðstaða til að sitja úti?
Á Hótelinu eru svalir á annarri hæð með setusvæði sem og gott setusvæði fyrir móttöku og morgunverðarsalinn.
Er morgunverður innifalinn?
Þú getur valið að bæta morgunverði við bókunina þína og byrjað daginn á ljúffengum morgunverði áður en haldið er af stað í ævintýri dagsins.
